Foreldraráð er kosið á foreldrafundum leikskólans. Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum.
Kosið var í foreldraráð 9. október 2018
Foreldraráð 2018-2019
Aðalmenn:
Anna Ósk Sigurðardóttir - This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Guðrún Ólafsdóttir - This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Eygló Svala Arnarsdóttir - This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hjalti Sigurðsson - This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Jón Hjörtur Brjánsson - This e-mail address is being protected from spambots. You need JavaScript enabled to view it.
Hér má finna handbók foreldraráða í leikskólum:
Handbók foreldraráða í leikskólum
Foreldraráð starfa samkvæmt lögum um leikskóla nr. 90/2008, 11. gr
Kjósa skal foreldraráð við leikskóla og skal leikskólastjóri hafa frumkvæði að kosningu í ráðið. Í foreldraráði sitja að lágmarki þrír foreldrar. Skal kosning til foreldraráðs fara fram í september á ári hverju og skal kosið til eins árs í senn. Foreldraráð setur sér starfsreglur. Leikskólastjóra ber að starfa með foreldraráði. Leikskólastjóri getur sótt um undanþágu til sveitarfélags um stofnun foreldraráðs ef gildar ástæður eru fyrir hendi, svo sem vegna fámennis í leikskóla.
Hlutverk foreldraráðs er að gefa umsagnir til leikskóla og nefndar, sbr. 2. mgr. 4. gr., um skólanámskrá og aðrar áætlanir sem varða starfsemi leikskólans. Þá skal ráðið fylgjast með framkvæmd skólanámskrár og annarra áætlana innan leikskólans og kynningu þeirra fyrir foreldrum. Foreldraráð hefur umsagnarrétt um allar meiri háttar breytingar á leikskólastarfi.