Leikskólinn Hamraborg tók til starfa í september árið 1964 og stendur við Grænuhlíð 24. Eftir sameiningu við leikskólann Sólbakka í júlí 2011 heitir leikskólinn Bjartahlíð eða Bjartahlíð í Grænuhlíð til aðgreiningar frá Björtuhlíð í Stakkahlíð sem er við Stakkahlíð 19.
Í Björtuhlíð í Grænuhlíð eru fjórar deildir með 85 vistunarrýmum. Deildirnar heita
- Furuhlíð: 2-3 ára deild. (3-4 ára eftir áramót)
- Birkihlíð: 3-4 ára deild. (4-5 ára eftir áramót)
- Reynihlíð: 4-5 ára deild. (5-6 ára eftir áramót)
- Grenihlíð: 4-5 ára. (5-6 ára eftir áramót)
Allt starf leikskólans er byggt á Aðalnámskrá leikskóla og lögum um leikskóla nr. 90/2008.
Einkunnarorð leikskólans er leikur, gleði, nám. Með þeim viljum við leggja áherslu á að barnið lærir í gegnum leikin, og gleðin verður að vera þar samferða.
Leikskólinn opnar klukkan 7:30 og lokar kl. 17:00.
Í Björtuhlíð er unnið margbreytilegt starf. Lögð er áhersla á skapandi starf og er frjáls leikur í hávegum hafður, svo og hópastarf, könnunaraðferðin er svo nýtt í námi barnanna. Unnið er með vísindaleiki barna sem er þróunarverkefni hjá okkur í samvinnu við Menntavísindasvið HÍ. Undanfarin ár höfum við unnið að verkefnum kennt við Comeníus en það er alþjóðleg samvinna.