Leikskólinn starfar undir formerkjum Reggio Emilia
Reggio Emilia stefnan er ekki aðferð til náms, heldur ákveðin stefna sem hægt er að fylgja og aðlaga að öðrum hugmyndum eða stefnum. Hún hófst eftir síðari heimstyrjöldina sem samstarfsverkefni milli kennarans Loris Malaguzzi (1920-1994) og foreldra í þorpum í kringum Reggio Emilia á Ítalíu og hefur aðalega verið notuð á leikskólastiginu.
Markmið Reggio er að nýta og örva alla þá hæfileika sem börnin búa yfir. Í leikskóla þar sem unnið er eftir hugmyndafræði Reggio er litið á barnið sem hæfileikaríkan, virkan einstakling sem hefur mikið fram að færa. Mikil virðing er borin fyrir barninu, vinnu þess og verkum. Lögð er áhersla á að nemendur fái að gera tilraunir og rannsóknir og noti öll skilningarvit sín. Kennarinn þarf að taka þátt í samræðum með börnunum, ýta undir gagnrýna hugsun og vera góður í að grípa hugmyndir barnanna og skrá.
Í Reggio er talað um umhverfið sem þriðja kennarann. Það á að vera síbreytilegt og bjóða upp á marga valkosti.
Í Reggio leikskólum er áhersla á listgreinar. Listin er nýtt til að þjálfa augað og til að örva athyglisgáfuna, hugmyndaflugið og ímyndunaraflið. Sjónrænt og myndrænt mál auðveldar leikskólabörnum skilning á umheiminum. Unnið er markvisst með liti, skugga og ljós.
Það má segja að heimspekin að baki Reggio Emilia megi útfæra í þessi atriði:
- Börn verða að hafa einhverja stjórn á því hvernig þau læra.
- Börn verða að geta lært með því að upplifa, að snerta, hreyfa, hlusta og fylgjast með.
- Börn eru í tengslum við önnur börn og efnislega hluti í heimum sem börn verða að fá að skoða og rannsaka.
- Börn verða að getað tjáð sig eftir ótakmörkuðum leiðum og tækifærum.
Út frá hugmyndum Reggio hefur þróast í Bandaríkjunum aðferð sem kölluð er Könnunaraðferð eða Project Approach sem hefur hlotið miklar vinsældir á Íslandi.
Aðferðin gengur út á það að ákveðið þema eða viðfangsefni er tekið fyrir og rannsakað. Mikilvægt er að verkefnið sé valið útfrá áhuga barnanna. Unnið er með sama viðfangsefnið í ákveðinn tíma og er það skoðað á fjölbreyttan og markvissan hátt frá sem flestum sjónarhornum. Þemavinnan gengur út á að gefa börnunum hugmyndir til að vinna með og velta þeim fyrir sér frá öllum hliðum. Í þemavinnu er lögð áhersla á að hvert barn sé frjótt og skapandi. Barnið hefur getu, löngun og fjölbreytta hæfileika til að tileinka sér þekkingu. Áhersla er lög á uppgötvunarnám, hlustað er á barnið og virðing borin fyrir skoðunum þess.