Árið 2010 bauðst okkur hér í Hamraborg að taka þátt í Comeniusarverkefni ásamt skólum í Lettlandi, Spáni og Tyrklandi. Við ákváðum að sækja um styrk sem við og fengum. Verkefnið heitir Surfing for a Green Europe og stendur til tveggja ára. Er þetta þriðja Comeniusarverkefnið sem Hamraborg tekur þátt í.
Fyrri verkefni eru:
The four Seasons 2002-2005
Investigation through the Seasons 2007-2009
Verkefnið byggir aðallega á að auka umhverfisvitund okkar. Einnig að vekja nemendur og kennara til vitundar um menningarlegan mismun innan Evrópu og efla virðingu og skilning gagnvart hefðum og venjum annarra landa.
Helstu viðfangsefnin verða:
Endurvinnsla að hlutir gangi í endurnýjun lífdaga.
Þjóðgarðar kynna okkur hvaða lög gilda um verndun þessara staða í hverju landi.
Hefðbundnir leikir hvert land mun velja nokkra hefðbundna leiki, kynna og kenna.
Fuglar þarfir þeirra, náttúrulegt umhverfi og flutningur milli landa, t.d. vegna árstíðaskipta, þ.e. farfuglar.
Útbúin verður bloggsíða þar sem hlaðið verður niður ljósmyndum og vídeómyndum (ath), vinnu nemenda og athugasemdum þeirra, skipst verður á tölvupósti.
Sjá nánar http://surfingforagreeneurope.blogspot.com
Comenius fyrir leik,- grunn,- og framhaldsskóla er hluti af Menntaáætlun ESB. Þar sameinast undir einum hatti stuðningur við menntun á öllum skólastigum og síðan fullorðinsfræðslu.
Comeniusþátturinn er nefndur eftir tékkneska guðfræðingnum, heimspekingnum og uppeldisfrömuðinum Johann Amos Comenius (1592-1670)